Fotbolti.net
22.07.18 - 18:57
Sverrir Örn Einarsson

Óli Jó: Byrjuðum leikinn grimmt

Auglýsing
Ólafur Jóhannesson

Ólafur Jóhannesson

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valsarar skelltu sér á toppinn á Pepsi-deildinni, í það minnsta tímabundið með stórsigri á Víkingum á Origo vellinum í dag en lokatölur urðu 4-1 Valsmönnum í vil.
„Frábært að fá stigin hérna það var það sem við stefndum að, vinna leikinn og það var svona. Byrjuðum leikinn grimmt og komum marki á þá snemma eins og við ætluðum okkur og vorum svona með \"control\" á leiknum fannst mér,\" sagði Ólafur Jóhannesson, þjálfari Vals, eftir sigurinn í dag.

Þó að sigur Valsmanna hafi síst verið of stór hafði fréttaritari samt sem áður á tilfinningunni að Valsmenn ættu meira inni ef eitthvað væri. Var þreyta í þeim?

„Það gæti verið, það var svona doði yfir okkur á tímabili en svona heilt yfir var þetta fínt hjá okkur og vel gert.“

Sebastian Starke Hedlund, sem gekk til liðs við Val fyrir skömmu, byrjaði sinn fyrsta leik fyrir Val í fjarveru Eiðs Arons í vörn heimamanna. Hvernig mat Óli frumraun hans og er von á fleiri leikmönnum til Vals?

„Mjög sáttur við hann, hann spilaði vel. En við erum ekki að ná í fleiri leikmenn - ekki eins og staðan er núna en ef það kemur eitthvað upp í hendurnar á okkur þá skoðum við það.“

Viðtalið í heild sinni er hérna að ofan.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.