Fotbolti.net
22.08.19 - 05:55
Brynjar Ingi Erluson

Evrópudeildin í dag - Margir Íslendingar í eldlínunni

Kolbeinn Sigþórsson mætir Celtic

Kolbeinn Sigþórsson mætir Celtic

Canon

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Nokkrir íslenskir leikmenn eru á ferðinni í umspili um sæti í riðlakeppni Evrópudeildarinnar í dag en fyrri leikirnir fara fram í kvöld.
Rúnar Már Sigurjónsson hefur verið frábær með Astana á tímabilinu en hann mætir BATE Borisov frá Hvíta-Rússlandi. Willum Þór Willumsson leikur með liðinu.

Arnór Ingvi Traustason og félagar hans í Malmö mæta Bnei Yehuda frá Ísrael og þá spila Albert Guðmundsson og hans menn í AZ Alkmaar gegn Antwerp frá Belgíu.

AIK frá Svíþjóð fær verðugt verkefni en liðið mætir Celtic. Kolbeinn Sigþórsson leikur með AIK. Sverrir Ingi Ingason fer þá með gríska liðinu PAOK til Slóveníu og mætir þar Slovan.

Leikir dagsins:

14:00 Astana (Kazakstan) - BATE (Hvíta-Rússland)
15:00 Ararat-Armenia (Armenía) - Dudelange (Lúxemborg)
17:00 Malmo FF (Svíþjóð) - Bnei Yehuda (Ísrael)
17:00 Suduva (Litháen) - Ferencvaros (Ungverjaland)
17:30 Ludogorets - Maribor (Slóvenía)
17:30 Feyenoord (Holland) - Hapoel Beer Sheva (Ísrael)
17:45 FCK - Riga (Lettland)
18:00 AEK - Trabzonspor (Tyrkland)
18:00 Legia (Pólland) - Rangers (Skotland)
18:30 PSV (Holland) - Apollon Limassol (Kýpur)
18:30 Steaua (Rúmenía) - Guimaraes (Portúgal)
18:30 Strasbourg (Frakkland) - Eintracht Frankfurt (Þýskaland)
18:30 AZ (Holland) - Antwerp (Belgía)
18:30 Gent (Belgía) - Rijeka (Króatía)
18:45 Celtic - AIK (Svíþjóð)
18:45 Linfield (N-Írl) - Qarabag
18:45 Braga - Spartak (Rússland)
19:00 Slovan (Slóvakía) - PAOK (Grikkland)
19:00 Espanyol (Spánn) - Zorya (Úkraína)
19:00 Partizan (Serbía) - Molde (Noregur)
19:00 Torino (Ítalía) - Wolves (England)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.