
Slúðurpakkinn tekur sér aldrei frí. Hér er pakki dagsins mættur. BBC tekur saman.
Manchester United hefur sett Jordan Sancho (19) kantmann Borussia Dortmund efstan á óskalista sinn fyrir janúar. Manchester United er að undirbúa 100 milljóna punda tilboð í leikmanninn. (Sun)
PSG hefur hafnað lánstilboði frá Barcelona í Neymar. Barcelona vildi fá leikmanninn á láni og kaupa hann síðar á 150 milljónir evra. PSG vill hins vegar fá 250 milljónir evra fyrir Neymar. (Marca)
Liverpool, Manchester City, Manchester United, Arsenal og Chelsea eru á meðal félaga sem hafa áhuga á Kai Havertz (20) framherja Bayer Leverkusen en hann er metinn á 91 milljón punda. (Sport1)
David De Gea (28) markvörður Manchester United á ennþá eftir að skrifa undir nýjan samning við félagið. United gæti neyðst til að bíða þar til í janúar eftir undirskrift en De Gea mun fá 350 þúsund pund í laun á viku með nýja samningnum. (Sun)
Dejan Lovren (30) varnarmaður Liverpool er á óskalista Bayer Leverkusen eftir að félagaskipti til Roma gengu ekki upp. (Bild)
Tottenham er í viðræðum um að selja miðjumanninn Victor Wanyama (28) til Club Brugge á ellefu milljónir punda. (Telegraph)
Michy Batshuayi (25) ætlar að berjast fyrir sæti sínu hjá Chelsea en hann mun endurskoða stöðu sína í janúar ef tækifærunum fjölgar ekki. (Standard)
Crystal Palace er að framlengja samninga við Christian Benteke (28) og James Tomkins (30). (Mail)
Manchester City er að skoða Thiago Almada (18) miðjumann Velez Sarsfield í Argentínu. (A Bola)
Enska úrvalsdeildin hefur hafnað beiðni Manchester City um að fá fleiri medalíur eftir sigurinn í ensku úrvalsdeildinni á síðasta tímabili. City fékk 40 medalíur en óskaði eftir að fá fleiri. (Mail)
Jurgen Klopp, stjóri Liverpool, vill sjá miðjumanninn Herbie Kane (20) spila með liðinu í deildabikarnum. Hann fer því ekki strax á lán en Portsmouth, Sunderland og Coventry hafa sýnt áhuga. (Portsmouth News)
Bayern Munchen er tilbúið að selja varnarmanninn Jerome Boateng (30) á 22 milljónir punda. (Marca)
Thierry Henry segist oft mæta á leiki á Emirates til að sjá leiki hjá sínu fyrrum félagi Arsenal og bæta sig sem þjálfari. (Telegraph)
Athugasemdir