22.08.26 - 14:18
Brynjar Ingi Erluson
Carrick: Vonsvikinn en þetta mun ekki slá okkur út af laginu

Michael Carrick klappar fyrir stuðningsmönnum

Mynd: EPA

Carrick vildi ekki tjá sig um Baleba

Michael Carrick, stjóri Manchester United, segir ýmislegt þurfa að bæta eftir 2-0 tapið gegn nýliðum Hull í dag.

TENGT EFNI
England: Martraðarbyrjun hjá Man Utd
Bæði mörk Hull komu eftir föst leikatriði þar sem nýliðarnir voru einfaldlega grimmari en leikmenn United.
United sýndi lítið fram á við og þegar upp var staðið voru úrslitin sanngjörn.
„Það er ýmislegt sem við þurfum að bæta. Þetta var aldrei að fara að verða fullkomið og verkefnið varð enn erfiðara þegar við lentum undir gegn nýliðum á þeirra heimavelli.“
„Við máttum ekki gefa þeim mikið en þeir fengu svo sannarlega sín tækifæri. Við erum vonsviknir en þetta mun ekki slá okkur út af laginu,“ sagði Carrick.
Hann vildi ekki fara nánar út í hvaða hluta leiksins þyrfti helst að laga.
„Það er okkar að vita það og vinna í því í vikunni. Við ætlum að styrkjast sem hópur og getum lært mikið af þessum leik.“
„Það er alltaf svekkjandi að fá á sig tvö mörk og þau réðu úrslitunum í dag. Það er ýmislegt sem við getum lagað en einn leikur breytir ekki þeirri vegferð sem liðið og félagið eru á.“
Manchester United hefur náð samkomulagi við Brighton um kamerúnska miðjumanninn Carlos Baleba en Carrick vildi ekki ræða mögulega komu hans.
„Öll einbeiting mín var á leiknum í dag. Ég tjái mig ekki um leikmenn fyrr en þeir hafa gengið til liðs við okkur,“ sagði Carrick.