22.08.26 - 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
„Erum að leita að gæðum frekar en magni"

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Régis Le Bris þjálfari Sunderland segir að félagið sé í leit að gæðum frekar en magni á félagaskiptamarkaðnum í sumar.

TENGT EFNI
Féll á læknisskoðun hjá Sunderland
Sunderland var nýliði í ensku úrvalsdeildinni í fyrra og náði ótrúlegum árangri undir stjórn Le Bris. Liðið endaði afar óvænt í sjöunda sæti og tekur því þátt í deildarkeppni Evrópudeildarinnar í haust.
Sunderland krækti í 18 leikmenn í fyrrasumar til að undirbúa sig fyrir úrvalsdeildina en hefur aðeins nælt sér í einn leikmann í sumar, 34 ára Thomas Meunier á frjálsri sölu. Félagið er hins vegar búið að selja tvo leikmenn fyrir 25 milljónir punda samanlagt, Eliezer Mayenda og Anthony Patterson.
„Við erum með mjög sterkan kjarna í þessum hóp og það er óþarfi að riðla honum alltof mikið til. Við erum með flottan hóp hérna sem vill ná árangri með Sunderland, þetta eru metnaðarfullir og gæðamiklir leikmenn," segir Le Bris.
„Við þurfum ekki að breikka hópinn þannig að við erum bara að leita að réttum leikmönnum. Markmiðið okkar er ekki að kaupa mikið af nýjum mönnum, við viljum bara leikmenn sem geta bætt hópinn. Við vitum nákvæmlega hvernig prófíla við viljum fá og erum ekki að stressa okkur.
„Markaðurinn er erfiður og eina sem við getum gert er að halda rónni og sýna þolinmæði. Við erum vel skipulagðir og erum að gera hlutina á réttan hátt."
Sunderland heimsækir nýliða Ipswich Town í dag í fyrstu umferð á nýju úrvalsdeildartímabili.