Fotbolti.net
22.08.26 - 17:02
Brynjar Ingi Erluson

Freysi fagnaði níu marka sigri - Hinrik Harðar kominn á blað

Rosenborg hefur unnið sex af sjö leikjum sínum undir Freysa

Rosenborg hefur unnið sex af sjö leikjum sínum undir Freysa

Canon

Mynd: Rosenborg

Freyr Alexandersson og lærisveinar hans í norska stórliðinu Rosenborg unnu öruggan 9-0 stórsigur á Nationalkameratene í 1. umferð norska bikarsins í dag.
Það hefur gengið glimrandi hjá Rosenborg síðan Freyr tók við liðinu um mitt sumar, en þetta var sjöundi sigurinn í jafnmörgum leikjum undir hans stjórn.

Rosenborg skoraði tvívegis í fyrri hálfleik áður en liðið valtaði yfir neðrideildarliðið í þeim síðari með sjö mörkum á aðeins þrjátíu mínútum.

Rosenborg er því örugglega komið áfram í 2. umferð bikarsins og sigurganga Freys heldur áfram.

Hinrik Harðarson skoraði tvö mörk fyrir Egersund sem vann Våg, 5-2. Þetta voru fyrstu mörk hans fyrir Egersund síðan hann gekk í raðir félagsins frá Odd í byrjun mánaðar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.