Fotbolti.net
22.08.26 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Glasner: Fáum tvo leikmenn til viðbótar

Glasner vann Sambandsdeildina með Crystal Palace.

Glasner vann Sambandsdeildina með Crystal Palace.

Canon

Mynd: EPA

Oliver Glasner þjálfari Nottingham Forest segir að félagið eigi enn eftir að kaupa nokkra leikmenn í sumarglugganum.
Diomande kynntur hjá Forest (Staðfest)
TENGT EFNI

Diomande kynntur hjá Forest (Staðfest)

Forest er búið að krækja í Ousmane Diomande, Xaver Schlager, Gustavo Sá og Steven Benda í sumarglugganum á meðan Elliot Anderson, Taiwo Awoniyi og Stefan Ortega eru farnir.

Forest mætir Leeds United í fyrstu umferð nýs deildartímabils í ensku úrvalsdeildinni í dag.

„Ég er sannfærður um að við fáum tvo leikmenn inn til viðbótar. Við vitum hvaða prófíla okkur vantar og núna snýst þetta bara um að ná samkomulagi um kaupverð og samningsmál. Auðvitað getur það gerst að við náum ekki að semja um einhvern leikmann, en þá erum við með aðra kosti tilbúna sem geta leyst svipuð hlutverk," segir Glasner.

„Við erum með kost eitt, tvö og þrjú fyrir hvort hlutverk. Við byrjum á kosti eitt og færum okkur niður listann ef viðræðurnar ganga ekki upp. Við erum tilbúnir að kaupa tvo nýja menn og ég er viss um að við munum krækja í frábæra leikmenn fyrir gluggalok. Við ætlum að sækja gæðaleikmenn sem eru með reynslu úr Meistaradeildinni og eiga marga landsleiki að baki fyrir þjóðir sínar. Ég hef fulla trú á að við fáum þessa leikmenn fyrir mánaðamót."

Talið er að Forest sé í leit að miðjumanni til að fylla í skarðið sem Elliot Anderson skilur eftir og framherja til að veita aukna samkeppni um byrjunarliðssæti. Komi framherji inn þykir líklegt að Arnaud Kalimuendo eða Igor Jesus þurfi að fara.
Forest hefur verið orðað við Lucas Bergvall, miðjumann Tottenham, en Spurs vill ekki selja.

Forest hefur verið orðað við Lucas Bergvall, miðjumann Tottenham, en Spurs vill ekki selja.

Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.