22.08.26 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
„Gríðarlega valdamikil félög reyna að sundra okkur"

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Miguel Ángel Gil, framkvæmdastjóri Atlético Madrid, hefur tjáð sig aftur um framherjann Julián Alvarez sem virðist ekki vera á förum frá félaginu í sumar þrátt fyrir tilboð frá nokkrum af stærstu félagsliðum heimsfótboltans.

TENGT EFNI
Julián Alvarez er ekki til sölu
Alvarez hefur verið meðal allra bestu leikmanna Atlético frá því að félagið keypti hann fyrir tveimur árum og er argentínski landsliðsmaðurinn ennþá með fjögur ár eftir af samningi.
Hann vildi ólmur skipta yfir til Barcelona í sumar en Atlético neitaði öllum tilboðum sem bárust í leikmanninn.
„Við ætlum að hjálpa Julián Alvarez í gegnum þennan erfiða kafla svo hann geti haldið áfram að gefa okkur bestu útgáfuna af sjálfum sér í haust og í vetur. Við munum þurfa á honum að halda ef við ætlum að berjast áfram við stærstu félagslið Evrópu," sagði Gil og gagnrýndi svo ráðgjafateymi leikmannsins.
„Við verðum að skilja að undanfarna mánuði hefur Julián ekki fengið bestu ráðin hjá ráðgjöfunum sínum. Það er augljóst að við sem fótboltafélag megum ekki leyfa öðrum félögum að ráðskast með okkur og sýna okkur vanvirðingu.
„Þetta eru gríðarlega valdamikil félög sem eru að reyna að sundra okkur. Þau hafa kannski meiri völd, en við munum alltaf standa upp fyrir okkar gildum. Við megum ekki leyfa utanaðkomandi áhrifum að eyðileggja Atleti. Við erum sterkust þegar við stöndum öll saman."

„Ákveðinn hópur sem vildi móðga Julián Alvarez"

Mynd: EPA

Mynd: EPA