Fotbolti.net
22.08.26 - 16:23
Brynjar Ingi Erluson

Lengjudeildin: Fylkir valtaði yfir gjafmilda Grindvíkinga - HK skoraði þrjú gegn Þrótti

Dominic Radic skoraði tvennu í gríðarlega mikilvægum sigri HK á Þrótti

Dominic Radic skoraði tvennu í gríðarlega mikilvægum sigri HK á Þrótti

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Helgi Þór Gunnarsson

Lengjudeildin
Fylkir og HK unnu mikilvæga sigra í toppbaráttunni í Lengjudeild karla í dag.
Fylkismenn unnu 6-1 stórsigur á Grindavík sem var heldur betur í gjafastuði.

Fyrsta markið kom á 14. mínútu eftir ótrúleg mistök í marki Grindavíkur. Hjörvar Daði Arnarsson hóf uppspilið eftir góða vörslu og sendi á Damir Muminovic sem fann Ibrahima Kalil Camara Diakite. Hann sendi boltann aftur á Hjörvar sem misreiknaði hann illa. Boltinn fór af markverðinum og í netið.

Guðmundur Tyrfingsson bætti við öðru marki skömmu síðar. Rétt áður hafði hann fengið gult spjald fyrir heldur sérstakt atvik. Guðmundur beið utan vallar en kom inn á án leyfis dómarans og fór því í bókina. Spjaldið þýðir að hann missir af næsta leik.

Þegar Guðmundur fékk loks leyfi til að koma aftur inn á völlinn lét hann strax að sér kveða og skoraði annað mark Fylkis.

Eyþór Wöhler kom Fylkismönnum í 3-0 á 42. mínútu. Þeir tóku hornspyrnu stutt og Theódór Ingi Óskarsson keyrði að teignum áður en hann sendi boltann fyrir. Grindvíkingar hreinsuðu út á Arnór Breka Ásþórsson sem skaut boltanum í Eyþór og þaðan í netið.

Kári Sigfússon bætti við fjórða markinu fyrir hlé. Grindvíkingum tókst ekki að hreinsa frá, boltinn hrökk til Kára sem þrumaði honum upp í þaknetið.

Tumi Fannar Gunnarsson skoraði fimmta markið eftir enn ein mistök Grindvíkinga. Fylkismenn unnu boltann hátt á vellinum og hreinsun Eysteins barst beint til Tuma sem var aleinn og skoraði af öryggi.

Arnar Breki Gunnarsson minnkaði muninn þegar stundarfjórðungur var eftir en Magnús Daði Ottesen átti lokaorðið eftir sendingu Guðmundar og innsiglaði 6-1 stórsigur Fylkis.

Fylkismenn eru í 3. sæti með 37 stig þegar tvær umferðir eru eftir og eiga enn möguleika á að fara beint upp. Grindavík er hins vegar í 10. sæti og í fallhættu.

HK vann toppbaráttuslag

HK vann sterkan 3-0 sigur á Þrótti í toppbaráttuslag í Kórnum.

Dominik Radic kom HK yfir á 9. mínútu. Jóhann Þór Arnarsson sendi boltann inn á teiginn þar sem Radic var fyrstur á boltann og stýrði honum í netið.

Þróttarar fengu nokkur tækifæri til að jafna fyrir hlé en tókst ekki að nýta þau.

Það hitnaði í kolunum snemma í síðari hálfleik. Vilhjálmur Kaldal fékk gult spjald eftir að hafa mótmælt peysutogi og Hans Sævar Sævarsson úr þjálfarateymi Þróttar sá rautt.

Þorsteinn Aron Antonsson tvöfaldaði forystu HK þegar tuttugu mínútur voru eftir með föstum skalla eftir fyrirgjöf.

Ólafur Örn Ásgeirsson átti stórleik í marki HK og varði allt sem Þróttarar sendu að marki hans. Radic gerði síðan endanlega út um leikinn. Þórhallur Ísak Guðmundsson varði fyrra skot hans en Radic fylgdi á eftir og skoraði úr frákastinu.

Hlynur Þórhallsson fékk sitt annað gula spjald undir lokin fyrir kjaftbrúk og þar með rautt. Slæmur endir hjá Þrótti sem missti af tækifærinu til að komast á toppinn.

HK er nánast búið að tryggja sér sæti í umspilinu. Liðið er í 4. sæti með 35 stig en Þróttur er í öðru sæti með 37 stig.

Fylkir 6 - 1 Grindavík
1-0 Hjörvar Daði Arnarsson ('14 , sjálfsmark)
2-0 Guðmundur Tyrfingsson ('32 )
3-0 Eyþór Aron Wöhler ('42 )
4-0 Kári Sigfússon ('44 )
5-0 Tumi Fannar Gunnarsson ('59 )
5-1 Arnar Breki Gunnarsson ('75 )
6-1 Magnús Daði Ottesen ('88 )
Lestu um leikinn

HK 3 - 0 Þróttur R.
1-0 Dominik Radic ('11 )
2-0 Þorsteinn Aron Antonsson ('70 )
3-0 Dominik Radic ('94 )
Rautt spjald: ,Hans Sævar Sævarsson, Þróttur R. ('53)Hlynur Þórhallsson, Þróttur R. ('97) Lestu um leikinn
Guðmundur Tyrfingsson átti frábæran leik í liði Fylkis

Guðmundur Tyrfingsson átti frábæran leik í liði Fylkis

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Afturelding19+2939
2Þróttur R.20+1837
3HK20+1235
4Fylkir19+734
5Njarðvík19+632
6Grótta19-127
7Leiknir R.19+225
8ÍR20-525
9Vestri19-1124
10Grindavík19-621
11Völsungur19-1220
12Ægir20-398
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.