Fotbolti.net
22.08.26 - 13:53
Brynjar Ingi Erluson

Markaskorari Hull: Veltum því ekki fyrir okkur hvað aðrir segja

Semi Ajayi fagnar marki sínu

Semi Ajayi fagnar marki sínu

Canon

Mynd: EPA

Semi Ajayi, sem skoraði fyrra mark Hull City í 2-0 sigrinum á Manchester United, segir hann og liðið ekkert spá í háværum gagnrýnisröddum.
England: Martraðarbyrjun hjá Man Utd
TENGT EFNI

England: Martraðarbyrjun hjá Man Utd

Ajayi skoraði fyrra mark Hull á 17. mínútu og kom heimamönnum í óvænta forystu. Hún var þó ekki svo óvænt miðað við gang leiksins.

Hull var grimmara liðið og baráttuandinn meiri hjá nýliðunum sem bættu síðan öðru marki við undir lok fyrri hálfleiks.

„Þetta var stórkostlegt og kórónaði frábæru byrjunina okkar. Ég er í skýjunum með að hafa skorað markið sem kom okkur af stað.“

„Mér er alveg sama hver skorar mörkin. Það þurfti heldur enga VAR-skoðun þannig að ég var bara hæstánægður með að sjá boltann í netinu,“
sagði Ajayi.

Hull er spáð rakleiðis aftur niður um deild en Ajayi segir leikmenn liðsins ekki hugsa um að afsanna neitt. Þeir leiði einfaldlega hjá sér hávaðann utan frá.

„Við erum ekkert að velta fyrir okkur hvað aðrir segja. Við höfum trú á okkur sjálfum og getu okkar til að standa okkur. Vonandi verður þetta gott tímabil,“ sagði varnarmaðurinn.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.