22.08.26 - 17:38
Sigurjón Árni Torfason
Venni ósáttur: Það var enginn að fara yfir strikið
Auglýsing

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Ég held að allir hljóti að vera sammála um að þessi niðurstaða var ekki í takt við leikinn," sagði Sigurvin Ólafsson, þjálfari Þróttar, eftir 3-0 tap gegn HK í Lengjudeldinni í dag.
Lestu um leikinn: HK 3 - 0 Þróttur R.
„Ég er mjög stoltur af strákunum að skila þessari frammistöðu. Mér fannst við betri allan leikinn, frá fyrstu til síðustu mínútu. Mikilvægasti þáttur leiksins, sem er að skora og fá ekki á sig mörk, það er það sem klikkaði. Það er lélegt hjá okkur að nýta ekki þessa yfirburði."
„Ég taldi ekki skotin, þetta hafa verið á þriðja tug skota að marki og helmingurinn á rammann. Fullt af virkilega góðum færum. Í raun og veru fannst mér HK ekki vera spila upp á neitt annað en löng innköst og reyna fiska horn. Þeir eru góðir í að nýta þau færi. Skora eftir aukaspyrnu í fyrsta markinu, skora reyndar rangstöðumark númer tvö, sem er ennþá meira svekkjandi. Þriðja markið er svo í lokin úr skyndisókn," sagði Venni.
Dómarinn lyfti upp rauða spjaldinu á bekkinn hjá HK undir lokin.
„Það gerist ekki neitt. Hann segir ekkert sem á að særa neinn. Ég er mjög óánægður með þriðja liðið í dag. Ég viðurkenni það að maður æsist í smá stund svo róast maður niður aftur. Það var enginn að fara yfir strikið, fullkomlega óþarfi að gefa rautt spjald," sagði Venni.