Hilmar Árni: Bara eitt sem við erum að hugsa um
Auglýsing

Hilmar Árni Halldórsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hilmar Árni Halldórsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hilmar Árni Halldórsson var í miklu stuði í Árbænum í dag og skoraði 2 mörk og lagði upp eitt er Stjarnan vann öruggan sigur á Fylki 1-4. Hilmar Árni var ángæður með leikinn.
<i>„Góður leikur. Mikið fram og til baka. Þetta var skemmtilegur leikur. Ánægður að hafa klárað þetta og núna er það bara næsti leikur"</i> Sagði Hilmar Árni.
<i>„Góður leikur. Mikið fram og til baka. Þetta var skemmtilegur leikur. Ánægður að hafa klárað þetta og núna er það bara næsti leikur"</i> Sagði Hilmar Árni.
Hilmar Árni er í harðri baráttu um markakóngstitilinn og hefur nú skorað 13 mörk í deildinni. Hann vill þó einbeita sér að öðrum hlutum „Það er bara eitt sem við allir erum að hugsa um og það er Evrópa. Við ætlum að klára næsta leik og svo bara sjáum við hvað setur. Það er það eina sem skiptir máli fyrir okkur" Sagði Hilmar Árni.
Nánar er rætt við Hilmar í viðtalinu hér fyrir ofan.
Nánar er rætt við Hilmar í viðtalinu hér fyrir ofan.



