Zlatan Ibrahimovic skoraði bæði mörk AC Milan í 2-0 sigri liðsins á Bologna í Seríu A í gær en þetta var fyrsta umferð deildarinnar.
Sænski framherjinn er 38 ára gamall og kom aftur til Milan frá Los Angeles Galaxy seinni hluta síðasta tímabils.
Margir töldu að hann myndi ekki hafa mikið fram að færa en hann sýndi þó að það er nóg eftir. Hann skoraði 11 mörk í 20 leikjum í Seríu A og framlengdi svo samning sinn við Milan út þessa leiktíð.
Hann skoraði með Milan í ítalska bikarnum á dögunum og skoraði þá bæði mörk Milan í gær.
„Ég er góður. Ég er að koma mér í gang, þetta var bara leikur númer tvö. Við unnum og ég hefði getað skorað fleiri mörk. Ef ég væri 20 ára gamall þá hefði ég skorað tvö í viðbót. Ég er eins og Benjamin Button, fæddist gamall og dey ungur," sagði Zlatan við Sky Italia.
Athugasemdir