01.10.26 - 08:30
Ívan Guðjón Baldursson
Bruno leyfði Vinícius að taka: Ekkert egó í þessu liði

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Vinícius Júnior hefur átt í miklum erfiðleikum með að skora mörk á upphafi nýs tímabils og var í byrjunarliði Brasilíu sem spilaði við Ástralíu í afar fjörugum vináttulandsleik á dögunum.

TENGT EFNI
Sjáðu mörkin: Brassar unnu í sex marka leik í Ástralíu
Vinicíus tókst hvorki að skora né leggja upp en þegar Brasilía var 2-3 yfir fékk liðið dæmda vítaspyrnu. Bruno Guimaraes átti að taka spyrnuna en rétti Vinícius boltann og skoraði kantmaðurinn öflugi af vítapunktinn.
„Liðsfélagarnir mínir vita að ég þarf sjálfstraust. Það var erfitt fyrir mig að tapa á HM, það er erfitt að sætta sig við tapið og það hefur verið erfitt fyrir mig að jafna mig að fullu," sagði Vinícius meðal annars eftir 4-2 sigur í Ástralíu.
„Bruno Guimaraes er vítaskyttan okkar þegar Raphinha er ekki á vellinum og ég hélt að hann vildi taka spyrnuna sjálfur, en hann rétti mér boltann. Hann veit að ég þarf á sjálfstrausti að halda á þessu augnabliki."
Guimaraes og Carlo Ancelotti tjáðu sig einnig um stórstjörnuna Vinícius.
„Það er ekkert egó í þessu landsliði. Vini þurfti virkilega á marki að halda og þess vegna rétti ég honum boltann," sagði Guimaraes áður en Ancelotti tók til orðs.
„Það er augljóst að hann er ekki að spila upp á sitt besta en Vini er samt leikmaður sem getur skipt sköpum, eins og hann gerði með markinu sínu í dag. Ég ætla að sýna Vini mikla þolinmæði út af því að hann er leikmaður sem á það skilið," sagði Ancelotti.