Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
   fim 22. september 2022 09:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Brands: Þurfum að selja Gakpo
Cody Gakpo (t.h.)
Cody Gakpo (t.h.)
Mynd: EPA

Cody Gakpo leikmaður PSV var orðaður við Southampton, Leeds United og Manchester United í sumar. Marcel Brands framkvæmdarstjóri PSV segir að ekkert tilboð hafi komið í leikmanninn í sumar.


Hann segir jafnframt frá því að ef það kæmi tilboð þyrfti félagið að samþykkja það.

„Ég lofa því að það kom ekkert tilboð í Cody. Við sögðum frá því að ef það kæmu ákveðin tilboð myndum við þurfa að selja hann. Það er ekki bara fjárhagslegt heldur líka því það var samkomulag við umboðsmenn Gakpo áður en ég kom," sagði Brands.

Gakpo er 23 ára gamall vængmaður. Hann hefur spilað 99 leiki fyrir PSV og skorað 35 mörk.


Athugasemdir
banner
banner
banner