Fotbolti.net
22.09.26 - 13:11
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Aron Einar: Þetta verður mín síðasta keppni með landsliðinu

Aron Einar: Þetta verður mín síðasta keppni með landsliðinu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Eimskip
Aron Einar Gunnarsson (1989) hefur gefið að Þjóðadeildin í ár verði hans síðasta keppni með íslenska landsliðinu.

Framundan í landsleikjaglugganum eru fjórir leikir í Þjóðadeild C og riðlakeppninni lýkur í nóvember. Ef Ísland fer í umspil verður það svo spilað á næsta ári og þá verður einnig undankeppnin fyrir EM spiluð.

Aron Einar var fyrirliði liðsins til fjölda ára og er næst leikjahæsti leikmaður í sögu landsliðsins. Hann er þremur leikjum á eftir Birki Bjarnasyni en þeir spiluðu saman í landsliðinu í mörg ár. Aron leiddi landsliðið á fyrstu stórmótin í sögu þess, liðið fór á EM 2016 og HM 2018 þar sem Aron var algjör lykilmaður. Aron spilar í dag í Katar og hefur verið í minna hlutverki innan vallar í landsliðinu síðustu misseri.

„Ég hef gefið líf mitt og sál fyrir landið mitt í 18 ár og landið hefur gefið mér orku til baka, nú er kominn tími til að skilja við. Þjóðadeildin þetta haustið verður mitt síðasta mót í treyjunni bláu," segir Aron Einar í færslu á Instagram.
„Ég átti mér draum … sem ég fékk að lifa

Fyrsti leikurinn minn í treyjunni bláu, fyrsta markið mitt, fyrsti leikurinn með fyrirliðabandið, fyrsta stórmótið sem ég fékk að upplifa ... alla þessa upplifun og allar þessar minningar sem ég á eftir að rifja upp og njóta alla mína ævi og segja börnunum og barnabörnunum frá um ókomna tíð.

Ég hef gefið líf mitt og sál fyrir landið mitt í 18 ár og landið hefur gefið mér orku til baka, nú er kominn tími til að skilja við. Þjóðadeildin þetta haustið verður mitt síðasta mót í treyjunni bláu. Við ætlum að leggja alla okkar orku í þessa leiki og við ætlum að vinna. Fyrir Ísland,"
segir Aron í færslunni.

Aron Einar: Þetta verður mín síðasta keppni með landsliðinu
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.