22.09.26 - 15:14
Kári Snorrason
Jón Dagur ræðir dræma miðasölu - „Getum sjálfum okkur um kennt“
Auglýsing

Segir skýra kröfu að vinna riðilinn.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Okkur langar ekki að vera í C-deild.“

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Við höfum ekki unnið nægilega marga leiki og veðrið er kannski ekki frábært.“

Mynd: Helgi Þór Gunnarsson

Segir skýra kröfu að vinna riðilinn.

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

„Ég held að við séum óhræddir að segja það að við ætlum okkur að vinna þennan riðil. Okkur langar ekki að vera í C-deild en það er staðan núna og við þurfum að byggja á því,“ sagði Jón Dagur Þorsteinsson í samtali við Fótbolta.net á hóteli landsliðsins fyrr í dag.
Ísland hefur á laugardaginn leik í C-deild Þjóðadeildarinnar er liðið fær Eistland í heimsókn. Ísland (74) er sterkasta liðið í riðlinum ef marka má heimslista FIFA.
Næst hæsta lið á eftir er Búlgaría (85) og fylgir Lúxemborg (98) þeim á eftir. Eistland (127) er neðsta lið riðilsins á heimslistanum.
„Það er dálítið augljóst að við verðum meira með boltann og við þurfum að nýta það, skapa nóg en á sama tíma vera þéttir til baka,“ sagði Jón aðspurður um Eistland sem mótherja.

TENGT EFNI
Dræm miðasala og lítill áhugi á komandi landsleikjum
Það virðist vera takmarkaður áhugi á komandi verkefni meðal íslensku þjóðarinnar og það endurspeglast í miðasölunni.
Samkvæmt upplýsingum KSÍ í síðustu viku voru aðeins um 1.500 seldir miðar á leikinn gegn Eistum á laugardag og þá voru aðeins 1.200 miðar seldir á leikinn gegn Búlgaríu.
Eru það vonbrigði?
„Nei, ég held að það sé okkur að kenna. Við höfum ekki unnið nægilega marga leiki og veðrið er kannski ekki frábært. Á meðan við vinnum ekki leiki og veðrið er ekki betra þá getum við bara sjálfum okkur um kennt,“ segir Jón, en Ísland hefur aðeins unnið einn af síðustu níu leikjum sínum á síðustu tólf mánuðum.
Um er að ræða fyrsta fjögurra leikja landsleikjagluggann sem fer fram á þessum tíma ársins. „Auðvitað er þetta smá öðruvísi en ég hef bara svo gaman af því að vera hérna þannig þetta breytir litlu,“ sagði Jón aðspurður um breytingarnar.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.