22.09.26 - 15:41
Kári Snorrason
„Rosalega auðvelt að standa hérna og segja það“
Auglýsing

Ísland tekur á móti Eistlandi næstkomandi laugardag.

Mynd: EPA

Logi Tómasson truflaði Stefán í viðtalinu.

Mynd: Mummi Lú

Gekk vel í hafsent gegn Japan.

„Hópurinn er búinn að vera lengi saman og það er mikill þéttleiki innan hópsins. Við erum klárir í sextán daga saman,“ sagði Stefán Teitur Þórðarson í samtali við Fótbolta.net á liðshóteli landsliðsins fyrr í dag.
Ísland er á leið í fjögurra leikja landsleiksglugga þar sem liðið mætir Eistlandi (tvisvar), Lúxemborg og Búlgaríu í C-deild Þjóðadeildarinnar. Stefán segir kröfuna vera skýra komandi inn í riðilinn.

„Auðvitað ætlum við að vinna þennan riðil en það er rosalega auðvelt að standa hérna og segja það. Við höfum tapað áður fyrir Lúxemborg, það er ekki eins og við séum að fara labba yfir þessi lið. Við þurfum að hafa fyrir því og sýna alvöru frammistöður í þessum leikjum til þess að ná í sigur,“ sagði Stefán.
Arnar Gunnlaugsson ræddi á blaðamannafundi landsliðsins fyrir tæpri viku síðan að Stefán gæti fest sig í sessi sem hafsent með landsliðinu.
„Það gekk rosalega vel á móti Japan þar sem við vorum flæðandi úr fimm manna varnarlínu og í fjögurra. Ég var að koma niður á milli hafsentanna eða sem ytri hafsent. Mér líður rosalega vel þegar ég er inni á vellinum, það breytir mig ekki miklu máli hvað við köllum stöðuna hverju sinni,“ sagði Stefán aðspurður um hvernig honum þætti að leika sem hafsent.
Viðtalið má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.

TENGT EFNI
Tækifæri fyrir Stefán að festa sig í sessi sem miðvörður - „Með ÞÞÞ genin af Skaganum“