Barcelona og Man City vilja Olmo - Liverpool gæti reynt við Kudus - Chelsea og Barcelona hafa áhuga á Dybala
   þri 22. október 2019 09:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Trippier: Costa fyndnastur í liðinu - Kallar mig alltaf Rooney
Mynd: Getty Images
Kieran Trippier gekk í sumar í raðir Atletico Madrid frá Tottenham. Hann hafði verið hjá Tottenham í fjögur tímabil og ákvað að söðla um í sumar.

Hjá Atletico hittir Trippier fyrir Diego Costa sem Trippier segir vera fyndnasta leikmann sem hann þekkir.

Margir muna eftir Costa hjá Chelsea. Hann var baráttuglaður og virkaði oft sem algjör fauti og var yfirleitt martröð að eiga við hann.

„Hann kallar mig Rooney tíu sinnum á dag," sagði Trippier við Marca.

„Hann gerir það í sífellu, bara til að grínast. En þetta er Diego svo mér finnst það bara fyndið og hann er mikill húmoristi. Ég þekkti hann frá því úr úrvalsdeildinni. Hann er fyndnasti leikmaður sem ég hef spilað með. Allir í liðinu eru brandarakallar en Costa er sá fyndnasti," sagði Trippier sem hefur þótt koma vel inn í lið Atletico sem situr í 3. sæti spænsku La Liga.

„Aðlögunin hefur gengið vel og það var tekið vel á móti fjölskyldunni. Veðrið er betra hér og maturinn einnig," sagði Trippier að lokum.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner