Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   fös 22. október 2021 19:44
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Núna eru allir synir Eiðs Smára búnir að skora fyrir Ísland
Byrjunarlið U17 landsliðsins í dag. Daníel Tristan í treyju númer 9.
Byrjunarlið U17 landsliðsins í dag. Daníel Tristan í treyju númer 9.
Mynd: KSÍ
Eiður Smári Guðjohnsen.
Eiður Smári Guðjohnsen.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Daníel Tristan Guðjohnsen skoraði í dag sitt fyrsta landsliðsmark fyrir Ísland er hann skoraði fyrir U17 landsliðið í 1-1 jafntefli gegn Georgíu.

Leikurinn var í undankeppni EM. Leikið er í fjögurra liða riðli í Ungverjalandi. Þetta var fyrsti leikur Íslands í riðlinum.

Georgía tók forystuna í leiknum, en Daníel Tristan jafnaði fyrir Ísland á 81. mínútu.

Daníel Tristan er yngsti sonur Eiðs Smára Guðjohnsen. Hann er aðeins 15 ára gamall og er það því merkilegt að hann sé að spila í U17 landsliðinu.

Markið í dag var það fyrsta sem hann skorar fyrir íslenskt landslið. Eins og fram kemur hjá Morgunblaðinu þá er hann sá sjötti með nafnið Guðjohnsen á bakinu til að skora fyrir Ísland.

Afi hans Arnór Guðjohnsen skoraði 14 mörk fyrir landsliðið og pabbi hans, Eiður Smári, er sá markahæsti í sögu A-landsliðsins með 26 mörk. Andri Lucas Guðjohnsen, eldri bróðir Daníels, er búinn að skora tvö A-landsliðsmörk og Sveinn Aron, elsti bróðir hans, skoraði 11 mörk fyrir yngri landsliðin; en á enn eftir að skora fyrir A-landsliðið. Arnór Borg, frændi Daníels, skoraði þá tvö mörk fyrir U19 landsliðið.

Daníel er kominn á blað í íslenska landsliðsbúningnum, í þriðja leiknum með U17 landsliðinu. Þetta verður án efa ekki hans eina mark fyrir Ísland.

Daníel er talinn mjög efnilegur. Hann er á mála hjá spænska stórveldinu Real Madrid, eins og Andri Lucas.

Þess má geta að Andri Lucas og Sveinn Aron spiluðu saman í A-landsliðinu gegn Liechtenstein fyrr í þessum mánuði. Sveinn Aron lagði upp fjórða markið í þeim leik fyrir bróður sinn með Eið Smára, aðstoðarlandsliðsþjálfara, á hliðarlínunni. Eftirminnileg stund á Laugardalsvelli.
Athugasemdir
banner
banner