Osasuna 1 - 1 Granada CF
1-0 Ezequiel Avila ('45 )
1-1 Angel Montoro ('90 )
Rautt spjald: Cote, Osasuna ('74)
1-0 Ezequiel Avila ('45 )
1-1 Angel Montoro ('90 )
Rautt spjald: Cote, Osasuna ('74)
Það var dramatík í eina leik kvöldsins í spænsku úrvalsdeildinni. Osasuna tók á móti Granada.
Osasuna skapaði sér hættulegri færi í leiknum og það voru þeir sem tóku forystuna rétt áður en flautað var til hálfleiks. Ezequiel Avila skoraði markið.
Þegar rúmur stundarfjórðungur var eftir af leiknum dró svo til tíðinda þegar Cote, leikmaður Osasuna, fékk beint rautt spjald.
Hann fær líklega kaldar kveðjur frá liðsfélögum sínum því einum fleiri tókst Granada að jafna í uppbótartíma. Varamaðurinn Angel Montoro skoraði markið.
Osasuna hefur átt mjög gott tímabil til þessa og situr í öðru sæti. Liðið hefði getað jafnað topplið Real Sociedad að stigum með sigri. Granada er hinum megin í töflunni, í 17. sæti með sjö stig.
Athugasemdir