Gyrðir blómstrar á Akureyri: Virkilega flott framtak hjá klúbbnum

Það er alveg sama hvar ég spila, mér finnst ég bara vera góður og hjálpa liðinu, það er númer eitt, tvö og þrjú í þessu.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég finn voða lítið stress, mér finnst meiri spenna í hópnum. Strákarnir eru glaðir og spenntir og ég finn það líka á stuðningsmönnum, fáir stressaðir

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Þetta er staðan sem við vildum vera í fyrir seinasta leik, að hafa þetta í okkar höndum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það mun hjálpa okkur að ná að sigla þessum þremur stigum sem við þurfum heim.

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

Það er búinn að vera þvílíkur uppgangur, mér finnst við alltaf vera að spila betur og betur með hverjum leik sem við spilum sem er frábært

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Algjörlega, ég náttúrulega fann það mjög mikið þegar að Þór-KA leikurinn var, það var öðruvísi fyrir mig heldur en aðra

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson


Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Það er alveg sama hvar ég spila, mér finnst ég bara vera góður og hjálpa liðinu, það er númer eitt, tvö og þrjú í þessu.

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Þór mætir FH á Kaplakrikavelli á laugardag klukkan 14:00 og með sigri mun Þór halda sæti sínu í deildinni. Þórsarar eru með örlögin í sínum höndum eftir sigur gegn Stjörnunni um síðustu helgi en sama dag tapaði KA gegn Val. Þór er með stigi meira en grannarnir í KA sem tekur á móti ÍBV á laugardag.
„Ég finn voða lítið stress, mér finnst meiri spenna í hópnum. Strákarnir eru glaðir og spenntir og ég finn það líka á stuðningsmönnum, fáir stressaðir."
Örlögin í ykkar höndum, ef þið vinnið, þá haldið þið ykkur uppi. Er það staðan sem þið voruð að horfa í?
„Já, algjörlega. Þú vilt náttúrulega alltaf vera með þetta í þínum eigin höndum. Eins og Siggi sagði í einhverju viðtali, þetta er staðan sem við vildum vera í fyrir seinasta leik, að hafa þetta í okkar höndum og við erum búnir að vinna gríðarlega hart að því og erum með þetta í okkar höndum. Núna er fullur fókus á að klára síðasta lekinn með stæl."
Margar góðar minningar af Kaplakrikavelli
Þú ert að fara að mæta þínum fyrrum liðsfélögum, er það eitthvað aukakrydd í þessu?
„Alltaf hrikalega gaman að fara í Krikann, þetta er einn flottasti og skemmtilegasti völlur sem ég hef spilað á. Ég á mjög margar góðar minningar af Kaplakrikavelli og þekki fullt af strákum og stuðningsmenn FH eru náttúrulega frábærir. Það er virkilega gaman að fá að mæta þeim í síðasta leik."
Gengið vel eftir komu Gyrðis
Þú hefur aðeins flakkað til um stöður á vellinum, hefur spilað í hafsentinum í síðustu leikjum. Ertu að fíla þig best þar?
„Allavega hér í Þór hef ég verið að fíla mig best í miðverðinum. En ég hef líka verið hægri bak og á miðjunni, skiptir ekki miklu máli. Okkur hefur gengið mjög vel þegar ég hef verið í miðverðinum. Það er alveg sama hvar ég spila, mér finnst ég bara vera góður og hjálpa liðinu, það er númer eitt, tvö og þrjú í þessu."
Eftir komu Gyrðis hefur Þór spilað mun betur og er gengi liðsins mun betra eftir að liðið var styrkt í glugganum. Sérstaklega hefur varnarleikurinn batnað til muna og hefur liðið verið eitt besta varnarliðið seinni hluta móts.
Mikil spenna í bænum
Nú ert þú á láni hérna fyrir norðan, finnurðu að það er aukaspenna að þetta sé barátta á milli KA og Þórs?
„Algjörlega, ég náttúrulega fann það mjög mikið þegar að Þór-KA leikurinn var, það var öðruvísi fyrir mig heldur en aðra. Ég fann að það var mikil spenna og ég finn það alveg þegar maður fer út í búð og svoleiðis, þá er alveg talað um Þór og KA. Það er mikil spenna í bænum sem er bara mjög gott og gaman fyrir okkur fótboltamennina og Þórsara að hafa þetta svona."
Samningsbundinn KR
Er eitthvað búið að nefna við mögulegt framhald hérna fyrir norðan?
„Ég get náttúrulega voða lítið sagt um það. Ég er náttúrulega samningsbundinn KR, er fókuseraður á að klára þennan leik núna. Ég get voða lítið sagt um það en það er alltaf eitthvað spjall og eitthvað þannig. En eins og ég segi, ég er samningsbundinn KR. Það er bara fókus að klára þennan leik og svo er ég fókusaður á KR eftir það."
Þurfum að taka allt með okkur
Þór vann afskaplega sannfærandi sigur á FH hér fyrir norðan. Er eitthvað sem að þið getið tekið úr þeim leik fyrir leikinn á laugardaginn?
„Já, klárlega. Það er bara eins og með marga af síðustu leikjum, við erum að taka mikið úr þeim. Við höfum verið góðir. Við höfum komið með gott attitude í leikina, með góða ákefð, góða orku í alla þessa leiki. Við þurfum að taka allt með okkur, þurfum líka að horfa á hvað við gerðum vel á móti FH seinast og reyna að halda í það og bæta ofan á það og gera ennþá betur."
Allir tekið mér hrikalega vel
Þú komst hingað fyrir rúmum þremur mánuðum, hvernig hefur þessi tími verið?
„Þetta hefur verið frábært, Akureyringar búnir að taka mér hrikalega vel; klúbburinn, stuðningsmenn og bara allir sem er virkilega ljúft.. Það er líka búið að ganga hrikalega vel hjá Þór síðan ég kom. Það er búinn að vera þvílíkur uppgangur, mér finnst við alltaf vera að spila betur og betur með hverjum leik sem við spilum sem er frábært. Mér finnst mjög gott að vera hérna."
Ánægður með Þór og samstarfsaðila að splæsa í rútur
Á laugardaginn, ég held að Þórsarar ætli að fjölmenn, það koma rútur að norðan. Er ekki gaman að sjá það?
„Jú, heldur betur. Ég var virkilega ánægður með að klúbburinn skyldi splæsa í rútur á völlinn, pepp að fá Þorpið með okkur til Hafnarfjarðar. Það mun hjálpa okkur að ná að sigla þessum þremur stigum sem við þurfum heim. Við þurfum á öllum að halda og stuðningurinn hjá Þór er búinn að vera frábær í sumar. Þetta verður bara geggjað og ég er mjög ánægður með að það séu margir að fara. Þetta verður frábær dagur og ég hvet alla sem hafa tíma og getu til að koma með suður og hjálpa okkur að ná í þessi þrjú stig," segir Gyrðir að lokum.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ég finn voða lítið stress, mér finnst meiri spenna í hópnum. Strákarnir eru glaðir og spenntir og ég finn það líka á stuðningsmönnum, fáir stressaðir

Mynd: Akureyri.net/Ármann Hinrik

Þetta er staðan sem við vildum vera í fyrir seinasta leik, að hafa þetta í okkar höndum

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Það mun hjálpa okkur að ná að sigla þessum þremur stigum sem við þurfum heim.

Mynd: Ármann Hinrik/Akureyri.net

Það er búinn að vera þvílíkur uppgangur, mér finnst við alltaf vera að spila betur og betur með hverjum leik sem við spilum sem er frábært

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Algjörlega, ég náttúrulega fann það mjög mikið þegar að Þór-KA leikurinn var, það var öðruvísi fyrir mig heldur en aðra

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson


Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
