Fotbolti.net
22.11.18 - 19:00
Arnar Helgi Magnússon

Styrktarleikur fyrir Bjarka Má

Bjarki Már Sigvaldason

Bjarki Már Sigvaldason

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

HK og Breiðablik mætast í Bose-mótinu í Kórnum næstkomandi fimmtudagskvöld. Leikurinn verður tileinkaður Bjarka Má Sigvaldasonar sem glímir við illvígt krabbamein.
Bjarki Már og eiginkona hans, Ástrós voru viðmælendur Sindra Sindrasonar í Ísland í dag í vikunni þar sem að þau ræddu meðal annars baráttuna við krabbameinið, giftinguna og framhaldið.

Innslagið má sjá í heild sinni með því að smella hér.

„Styrktarleikur á milli HK og Breiðabliks í meistaraflokki karla í fótbolta fer fram fimmtudaginn 29. Nóvember. Leikurinn hefst klukkan 20.00 og verður spilaður í Kórnum í Kópavogi."

„Bjarki hefur undanfarin sex ár háð erfiða baráttu við krabbamein og nú segja læknar að ekkert sé við ráðið og hann eigi stutt eftir. Kópavogsfélögin HK og Breiðablik vilja taka höndum saman með því að tileinka Bjarka Má og fjölskyldu leikinn og vonast til þess að Kópavogsbúar og aðrir gestir komi í Kórinn og styrki Bjarka og fjölskyldu hans á þessum erfiðu tímum," segir á Facebook síðu leiksins.

Frjáls framlög og þeir sem ekki komast á leikinn geta lagt sitt að mörkum með því að leggja inná styrktar reikning fjölskyldunnar
130-26-20898, kt. 120487-2729.

Styrktarleikur fyrir Bjarka Már Sigvaldsson og fjölskyldu.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.