Fotbolti.net
22.11.19 - 11:00
Magnús Már Einarsson

Lovren: Gott að finna aftur að maður er mikilvægur

Lovren: Gott að finna aftur að maður er mikilvægur
Canon

Mynd: Getty Images

„Ég varð að byrja aftur á núlli til að sýna að ég verðskuldi að vera í byrjunarliðinu en svona er fótboltinn," sagði Dejan Lovren, varnarmaður Liverpool við Sky Sports í dag.

Lovren var mikið meiddur á síðasta tímabili og á þessu tímabili var hann ekki í leikmannahópnum í fyrstu sex leikjum tímabilsins.
Undanfarnar vikur hefur Lovren verið í byrjunarliðinu við hlið Virgil van Dijk eftir að Joel Matip meiddist.

„Þegar þú hefur verið frá í nokkra mánuði og færð ekki margar mínútur á vellinum þá þarf að byrja upp á nýtt. Á undirbúningstímabilinu lagði ég hart að mér bakvið tjöldin."

„Kannski byrjaði þetta ekki eins vel og ég bjóst við á þessu tímabili en ég hef rætt við stjórann og verið þolinmóður. Það er auðvelt að segja það en erfiðara að gera það."

„Ég gerði það og kom aftur til baka...það er gott að finna aftur að maður er mikilvægur leikmaður og það er það sem skiptir máli fyrir mig."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.