„Miðað við það hversu snemma við misstum Pepe af velli, þá verðum við að sætta okkur við þessi úrslit," sagði Mikel Arteta, stjóri Arsenal, eftir markalaust jafntefli við Leeds.
Leeds var sterkari aðilinn í leiknum en Nicolas Pepe var rekinn af velli á 51. mínútu.
„Ég kann aldrei vel við jafntefli en undir þessum kringstæðum tökum við þetta stig."
„Fyrri hálfleikurinn var kaflaskiptur. Leikurinn slitnaði aðeins, við fórum að gefa þeim boltann og það varð til þess að þeir fengu svæði til að sækja í. Í seinni hálfleiknum snerist þetta um að verjast vel, vera þolinmóðir og nota hraða leikmanna okkar í svæðið sem þeir skildu eftir."
„Það er erfitt að vera með tíu leikmenn gegn ellefu. Ég kunni vel við persónuleika liðsins eftir að Pepe brást liðinu."
Athugasemdir