Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
   sun 22. nóvember 2020 13:44
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Evra: Ég spilaði 'hvar er Valli?' - Kominn tími á 'hvar er Özil?'
Mynd: Getty Images
„Ég var vanur að spila leikinn 'hvar er Valli?' Það ætti að búa til nýja útgáfu sem heitir 'hvar er Özil?'

Voru orð Patrice Evra á Sky Sports. Mesut Özil er úti í kuldanum hjá Arsenal og hefur ekki verið í leikmannahópi liðsins á tímabilinu.

„Við ræðum hvernig Aubameyang á að skora. Við ræðum um vöntun á sköpunarmætti og stjóra sem hafa lítinn tíma. Ég veit að stundum er hann latur að vinna til baka en hvar er Özil?"

Með Patrice Evra er Freddie Ljungberg. Rætt hafði verið um Mikel Arteta og hans stöðu hjá Arsenal. Klippuna má sjá hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner