Guimaraes, Silva, Van Persie, Yamal, Gil, Giroud og fleiri í slúðurpakkanum
banner
   sun 22. nóvember 2020 14:38
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Heimild: MBL 
Sjáðu mörkin: Aftur hræðilegt vítaklúður hjá Fulham
Mynd: Getty Images
Everton vann 2-3 útisigur á Fulham í ensku úrvalsdeildinni í dag.

Dominic Calvert-Lewin skoraði tvö mörk fyrir Everton og Abdoulaye Doucoure eitt. Ruben Loftus-Cheek og Bobby Reid skoruðu mörk Fulham.

Í stöðunni 1-3 fékk Fulham vítaspyrnu og á vítapunktinn steig Ivan Cavaleiro. Cavaleiro rann á vítapunktinum og skaut boltanum í stoðfótinn á sér eins og sjá má hér að neðan. Þetta var þriðja vítaklúður Fulham í röð.

Ademola Lookman átti lélegasta víti sögunnar að margra mati í síðasta leik og áður hafði Aleksandar Mitrovic klikkað. Þar á undan hafði Fulham skorað úr þremur af fimm vítaspyrnum sínum.



Athugasemdir
banner
banner