Fotbolti.net
22.12.18 - 13:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hrikalega fyndið sjálfsmark - Hvernig fór þessi inn?

Hrikalega fyndið sjálfsmark - Hvernig fór þessi inn?
Canon

Mynd: Getty Images

Kvennaboltinn
Kvennalið Maidstone United fékk snemmbúna jólagjöf þegar liðið mætti Prince of Wales í bikarleik á Englandi.

Leikurinn endaði með 12-0 sigri Maidstone United en eitt markið í leiknum hefur fengið mikla athygli á samfélagsmiðlum fyrir það hversu skrautlegt það er.
Markvörður Prince of Wales og tveir af varnarmönnum liðsins lentu í miklum hremmingum er þær reyndu að koma boltanum í burtu með þeim afleiðingum að boltinn endaði í netinu.

Þetta gat varla verið óheppilegra. Eitt af sjálfsmörkum ársins þarna á ferðinni.

Þess má geta að liðin eru bæði langt frá því að vera í efstu deild á Englandi, mjög langt því frá. Þessi bikarkeppni sem liðin voru að taka þátt í er haldin fyrir lið staðsett í Suðaustur-Englandi sem eru í sjöundu deild og neðar. Þetta kemur fram á vef Sports Illustrated.

Hér að neðan má sjá myndband af markinu.




Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.