28.08.26 - 15:48
Elvar Geir Magnússon
Vandamál komu upp í læknisskoðun Ordonez

Mynd: EPA

Mynd: EPA
Óvíst er hvort Crystal Palace kaupi varnarmanninn Joel Ordonez, frá Club Brugge eftir að vandræði komu upp í læknisskoðun. Breska ríkisútvarpið segir að Palace eigi eftir að taka lokaákvörðun um hvort halda eigi áfram með samninginn.
Ekvadorski miðvörðurinn virtist á leið til Aston Villa þegar Crystal Palace slóst í leikinn. Belgíska félagið samþykkti lánstilboð sem innihélt kauprétt eftir tímabilið.
Ordonez er 22 ára og er að jafna sig eftir fótbrot sem Palace vissi af þegar samkomulagið var gert. Talið er að meiðslin séu hinsvegar verri en Palace hélt.

TENGT EFNI
Disasi til Palace á láni (Staðfest)
Palace vill fá nýjan miðvörð eftir að Chadi Riad var tekinn af velli á börum gegn Everton á laugardaginn.
Þeir gengu frá samningi um að fá Axel Disasi að láni frá Chelsea á miðvikudaginn en vilja bæta öðrum miðverði við hópinn.