28.08.26 - 17:00
Elvar Geir Magnússon
Telur Delap fullkominn fyrir félagið - „Hann er hungraður“

Liam Delap í Skírisskógi.

Mynd: Nottingham Forest

Oliver Glasner, stjóri Forest.

Mynd: EPA

Mynd: EPA

Liam Delap í Skírisskógi.

Mynd: Nottingham Forest
Það hefur vakið talsvert umtal að Nottingham Forest hafi borgað Chelsea 50 milljónir punda fyrir sóknarmanninn Liam Delap.
Delap skoraði aðeins eitt deildarmark fyrir Chelsea á síðasta tímabili og Lundúnafélagið græðir 20 milljónir á honum. En Delap er 23 ára og hafði verið duglegur við markaskorun fyrir Ipswich áður en hann var keyptur til Chelsea.

TENGT EFNI
Delap til Forest (Staðfest) - Keyptur fyrir ótrúlega upphæð
„Við vorum í viðræðum í marga daga og gátum sannfært Liam um að Nottingham Forest væri rétta félagið fyrir hann á þessum tímapunkti ferilsins," segir Oliver Glasner, stjóri Palace.
„Áður en Liam valdi Chelsea vildu allir í ensku úrvalsdeildinni fá hann eftir frábært tímabil hans hjá Ipswich. Við vorum að leita að sóknarmanni eins og honum og Liam er rétti kosturinn. Við erum fullkomið félag fyrir hann og ég er sannfærður um að hann sé fullkominn leikmaður fyrir okkur."
„Hann átti erfitt tímabil hjá Chelsea, miklar væntingar voru gerðar og ekki síst frá honum sjálfum. Og svo síðustu vikurnar fékk hann ekki að æfa með liðinu. Þá er ljóst að maður verður að leita að nýju félagi þar sem maður hefur betri möguleika á að fá mínútur og endurlífga ferilinn sinn."
„Við erum að fá leikmann sem er enn ungur og hefur sannað að hann getur skorað mörg mörk í ensku úrvalsdeildinni. Hann er hungraður, hann vill bæta sig og taka skref fram á við."

England um helgina - Man Utd mætir aftur nýliðum

TENGT EFNI
Maðurinn sem Liverpool þarf að stöðva
Stöðutafla
| # | Lið | L | mun | Stig |
|---|---|---|---|---|
| 1 | Víkingur R. | 20 | +46 | 51 |
| 2 | KR | 20 | +27 | 43 |
| 3 | Fram | 20 | +14 | 43 |
| 4 | Breiðablik | 20 | +5 | 30 |
| 5 | Keflavík | 20 | -3 | 28 |
| 6 | ÍA | 20 | -4 | 26 |
| 7 | Stjarnan | 20 | -10 | 24 |
| 8 | Valur | 20 | -7 | 23 |
| 9 | FH | 20 | -12 | 18 |
| 10 | ÍBV | 20 | -12 | 17 |
| 11 | KA | 20 | -14 | 16 |
| 12 | Þór | 20 | -30 | 15 |