28.08.26 - 22:27
Helgi Inguson
Aron Snær: Vona bara að þeir klúðri þessu
Auglýsing

Aron Snær Ingason

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Aron Snær Ingason

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

„Mér líður frábærlega. Við hefðum getað skorað fleiri, en markmiðið fyrir leik var að vinna og bara bónus að skora mörg mörk," sagði Aron Snær Ingason, leikmaður Þróttur, eftir leik liðsins gegn Ægi. Aron skoraði þrennu í kvöld í stórsigri.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 7 - 2 Ægir
„Þetta var bara skyldusigur og við vorum góðir. Þessi fyrri hálfleikur var svolítið skrítinn, fáum tvö mörk á okkur en svo áttu þeir ekki séns í seinni hálfleik."
Aron lék á alls oddi. Hann skoraði þrjú mörk og lagði þar að auki upp eitt mark.
„Þetta var fínt í dag. Það er alltaf gaman að skora."
Sigurvin Ólafsson (Venni), þjálfari Þróttar, nýtti allar sínar skiptingar og hvíldi lykilmenn. Aron fór þó ekki útaf. Vildir þú skora fleiri mörk?
„Jájá, ég hefði alveg viljað fleiri mörk en þrennan dugir. Venni spurði mig hvort vildi taka klára leikinn á 70. mínútu og ég sagði bara já," sagði Aron léttur.
Þróttur er í öðru sæti deildarinnar en Afturelding getur orðið Lengjudeildarmeistarar á morgun með sigri á Vestra í Mosfellsbæ.
„Ég held að ég slökkvi bara á símanum og tékki á úrslitunum eftir leik. Þetta er ekki í okkur höndum lengur og ég vona bara að þeir klúðri þessu."
Aron Snær hefur verið einn besti leikmaður Lengjudeildarinnar síðustu ár og var meðal annars orðaður við Val fyrr í sumar.
„Ég er að verða samningslaus eftir tímabilið og verð bara taka stöðuna eftir það. Auðvitað er draumurinn að koma Þrótti upp, en það verður að koma í ljós með hverjum ég spila á næsta ári," sagði Aron að lokum.