Fotbolti.net
28.08.26 - 21:58
Helgi Inguson

Skoraði í sínum fyrsta byrjunarliðsleik eftir veruna í Inter - „Besta tilfinning í heimi"

Auglýsing
Björn Darri var á láni hjá Inter Milan síðasta vetur

Björn Darri var á láni hjá Inter Milan síðasta vetur

Canon

Mynd: Inter

Lengjudeildin
Þróttur gjörsigraði Ægi á Pepsi-vellinum í 21. umferð Lengjudeildarinnar í kvöld. Hinn 17 ára gamli Björn Darri Oddgeirsson skoraði fyrsta mark leiksins í sínum fyrsta byrjunarliðsleik fyrir Þrótt.
Lestu um leikinn: Þróttur R. 7 - 2 Ægir
„Mér líður helvíti vel, ég skoraði fyrsta markið og mér líður bara frábærlega," sagði Björn beint eftir leik.

„Ég vissi að við værum með þetta. Við komum allir 100% inn í leikinn og kláruðum sigurinn."

Björn lék með yngri liðum Inter Milan síðasta árið. Í lánssamningi hans sem rann út í júlí var kaupákvæði sem Inter nýtti sér ekki.

„Þetta var mjög skemmtilegur tími og góð reynsla. Ég var með U-18 og U-19 liðinu þeirra. Þetta var svolítið erfitt (að fá mínútur) til að byrja með en að lokum var ég farinn að fá margar mínútur."

„Núna ætla ég að vera smá heima og svo sjáum við til." Björn er vægast sagt ánægður að vera kominn aftur heim í Laugardalinn til fjölskyldu og vina. „Það er besta tilfinning í heimi."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.