Fotbolti.net
23.02.21 - 23:45
Atli Arason

Sigur Leeds í kvöld tileinkaður ömmu Kalvin Philips

Sigur Leeds í kvöld tileinkaður ömmu Kalvin Philips
Canon

Mynd: Getty Images

Leeds vann Southampton á Elland Road með þremur mörkum gegn engu. Heimamenn tileinkuðu ömmu Kalvin Philips, Val Crosby, sigurinn í kvöld en Val lést fyrr í vikunni.
Val Crosby, sem var betur þekkt sem Granny Val, var mjög vinsæl og gríðarlega vel metin innan Leeds United eins og þeir sem sáu þættina um félagið, Take Us Home, ættu að þekkja vel.

Kalvin Philips var ekki með í kvöld eins og í síðasta leik liðsins gegn Wolves vegna vöðvameiðsla í kálfa. Eftir sigurinn á Southampton létu Leikmenn Leeds mynda sig saman með bol merktan Granny Val til votta Philips og fjölskyldu hans samúð sína. Myndina sem og hjartnæma kveðju Philips til ömmu sinnar má sjá neðar í fréttinni.

„Hópurinn okkar er mjög þéttur og allir sem sáu heimildaþættina á Amazon vita að Granny Val var óbeint mjög stór hluti af hópnum okkar. Það var fullt af fólki í kringum liðið sem elskaði hana án þess að þekkja hana neitt. Sigurinn í kvöld er tileinkaður Kalvin og fjölskyldu hans,“ sagði framherjinn Patrick Bamford í viðtali eftir leikinn.



Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.