Atletico Madrid og Chelsea áttust við í fyrri leik liðanna í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar.
Leikurinn var mjög jafn og var fátt um færi, eins og mátti mögulega búast við fyrir leikinn.
Markalaust var í hálfleik en á 68. mínútu kom eina mark leiksins og var það stórglæsilegt.
Oliver Giroud, fékk tækifæri í byrjunarliðinu og þakkaði hann kærlega fyrir sig með þessu stórkostlega marki. Hann átti þá hjólhestaspyrnu sem fór í bláhornið, óverjandi fyrir Jan Oblak í marki Atletico.
Markið var í fyrstu dæmt af en VAR dómarateymi tók sér um tvær mínútur til að skoða atvikið og að lokum stóð markið.
Þetta glæsilega mark má sjá hérna.
Athugasemdir