Heimild: Vísir
Aukin öryggisgæsla er í kringum íslenska landsliðið í Mexíkó vegna mikillar ólgu sem hefur myndast í landinu eftir að einn helsti glæpaforingi landsins var skotinn til bana í nótt.
Leikurinn á að fara fram á aðfaranótt fimmtudags og segir Eysteinn Pétur Lárusson framkvæmdastjóri KSÍ í samtali við Vísi enga sénsa tekna.
Íslenska landsliðið er nú við æfingar í Queretaro í Mexíkó þar sem leik var meðal annars frestað í gær. Eysteinn segir gæsluna hafa verið mikla þegar liðið kom út en hún hefur verið aukin vegna ástandsins.

„Við höfum fengið upplýsingar frá mexíkóska fótboltasambandinu sem er í beinu sambandi við yfirvöld þar og við erum í sambandi við yfirvöld hérna. Staðan er tekin reglulega og aðalatriðið að gæsta fyllsta öryggis,“ segir Eysteinn við Vísi.
Ómar Smárason, samskiptastjóri KSÍ, segir í samtali við RÚV ekki hafa komið til tals að fresta eða aflýsa leiknum:
„Við fylgjumst með fréttum og það hefur engin ákvörðun verið tekin um að fresta leiknum eða hætta við hann. Það hefur ekki komið til tals. Við fáum upplýsingar frá knattspyrnusambandinu og yfirvöldum hér og erum í sambandi við yfirvöld heima,“ segir Ómar við RÚV.
ESPN fjallaði um málið í morgun og þar segir að mexíkóska fótboltasambandið hafi ekki enn tekið ákvörðun um það hvort leiknum verði frestað, aflýst eða hann spilaður.
Athugasemdir