Fotbolti.net
23.02.26 - 17:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Talsverður áhugi á leikmanni Fram erlendis frá

Jakob Byström.

Jakob Byström.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Samkvæmt heimildum Fótbolta.net er áhugi á Jakob Byström, sóknarmanni Fram, erlendis frá. Byström er Svíi en er að hluta til Íslendingur.

Hann samdi við Fram í fyrra og stóð sig vel síðasta sumar - skoraði sjö mörk í ellefu byrjunarliðsleikjum. Hann skoraði 0,68 mörk á hverjum 90 mínútum sem hann spilaði.

Sænsk félög fylgjast með gangi mála hjá hinum 21 árs gamla Byström en það er einnig áhugi frá félögum frá öðrum löndum. Fram fékk fyrr í vetur tilboð frá ónefndu félagi utan Svíþjóðar og eru viðræður í gangi milli félaganna.

Fótbolti.net heyrði slúðrað um áhuga frá Häcken í Svíþjóð en Ólafur Garðarsson, umboðsmaður Byström, vildi ekki nefna nein félög.
Svíi með dalvískt blóð sem ætlar að valda usla með hraða sínum og krafti
TENGT EFNI

Svíi með dalvískt blóð sem ætlar að valda usla með hraða sínum og krafti

„Það er rétt að það er áhugi á honum, hann hefur vakið athygli utan landssteinanna og það hafa komið félög í vetur til að skoða hann. Saga hans er áhugaverð, kom til Íslands án þess að vera búinn að spila fullorðinsbolta," segir Ólafur.

Byström framlengdi samning sinn við Fram í lok síðasta tímabils og er hann samningsbundinn félaginu út tímabilið 2027.
Skoraði sjö mörk í Bestu deildinni í fyrra.

Skoraði sjö mörk í Bestu deildinni í fyrra.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.