Tveir leikmenn Bournemouth undir smásjá Man Utd - Bayern vill Gordon frá Newcastle - Villa sýnir Trafford áhuga
banner
   mán 23. mars 2026 06:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Ndiaye öskraði í myndavélina - „Afríkumeistarar"
Mynd: EPA
Iliman Ndiaye, leikmaður Everton, hefur gefið það fullkomlega skýrt út hvað honum finnst um að Senegal hafi verið svipt Afríkumeistaratitlinum.

Ndiaye var hluti af senegalska landsliðinu sem vann Afríkumeistaratitilinn í janúar eftir 1-0 sigur á Marokkó í úrslitum.

Afríska fótboltasambandið svipti hins vegar Senegal titilinum fyrr í vikunni eftir að liðið ákvað að ganga af velli til að mótmæla umdeildri vítaspyrnu sem Marokkó fékk.

Ndiaye og Idrissa Gueye, samherji hans hjá Everton og í landsliðinu, héldu uppi tveimur fingrum, eftir að Ndiaye skoraði í 3-0 sigri gegn Chelsea um helgina, sem táknaði fjölda Afríkumeistaratitla sem þeir telja að Senegal hafi unnið.

Eftir leikinn horfði Ndiaye í myndavél og öskraði „Afríkumeistarar."
Slapp
banner
banner