Fotbolti.net
23.05.26 - 19:15
Ívan Guðjón Baldursson

Slot: Mo var ánægður að spila minn leikstíl í fyrra

Slot: Mo var ánægður að spila minn leikstíl í fyrra
Canon

Mynd: EPA

Arne Slot þjálfari Liverpool svaraði spurningum á fréttamannafundi í gær og tjáði sig meðal annars um ummæli Mohamed Salah sem vöktu mikla gagnrýni meðal fótboltasérfræðinga.
Slot neitaði að tjá sig um hvort Salah taki þátt í lokaumferð enska úrvalsdeildartímabilsins, sem yrði kveðjuleikur hans eftir að hafa náð mögnuðum árangri sem lykilmaður Liverpool. Hann tók undir orð Jamie Carragher sem sagði að það skiptir ekki máli hvernig þjálfaranum líður varðandi ummælin. Það eina sem skiptir máli í lokaumferðinni er að tryggja Meistaradeildarsæti fyrir Liverpool. Ef viðvera Salah á vellinum gefur liðinu auknar líkur á að tryggja sætið þá ætti hann að spila þrátt fyrir ummælin.

Carragher ekki hissa á ummælum Salah: Hann er eigingjarn
TENGT EFNI

Carragher ekki hissa á ummælum Salah: Hann er eigingjarn



„Þið segið að Salah vilji spila þungarokksbolta og þið segið að það sé ekki minn stíll. Það var minn stíll sem leiddi okkur til enska úrvalsdeildartitilsins í fyrra og Mo var hamingjusamur þá," sagði Slot meðal annars á fréttamannafundinum.

„Við unnum titilinn í fyrra og ætlum að reyna að vinna hann aftur á næstu leiktíð. Þetta hefur verið erfitt tímabil og við Mo höfum sama markmið: við viljum að Liverpool nái sem mestum árangri."

Arsenal varð Englandsmeistari í ár eftir 22 ára bið og er Mikel Arteta kominn í guðatölu meðal stuðningsmanna.

„Ég vil óska Arsenal til hamingju með titilinn, Mikel og þjálfarateymið hans unnu mikið þrekvirki. Þeir eru að vísu öðruvísi meistarar heldur en við vorum í fyrra, þetta er í fyrsta sinn í 30 ár sem meistararnir skora 40% af mörkunum úr föstum leikatriðum.

„Luis Enrique sagði að Arsenal sé besta lið deildarinnar án boltans og ég er sammála því."


28 af 69 mörkum Arsenal á deildartímabilinu komu eftir föst leikatriði. Þar af eru fjórar vítaspyrnur.

Slot neitar að svara því hvort Salah verði með
TENGT EFNI

Slot neitar að svara því hvort Salah verði með

Slot: Mo var ánægður að spila minn leikstíl í fyrra
Canon

Mynd: EPA

Slot: Mo var ánægður að spila minn leikstíl í fyrra
Canon

Mynd: EPA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.