Fotbolti.net
23.06.20 - 23:04
Anton Freyr Jónsson

Búi: Þeir sýndu gæði sín og kláruðu okkur

Auglýsing
Búi: Þeir sýndu gæði sín og kláruðu okkur
Canon

Mynd: Hulda Margrét

Mjólkurbikarinn
Vængir Júpiters og KR mættust í 32-liða úrslitum Mjólkurbikar karla í Egilshöll og endaði leikurinn með stór sigri KR 1-8
Búi þjálfari Vængja var sáttur með fyrri hálfleik en segir KR sýna gæðin sín í seinni hálfleik og klára leikinn

„Fyrstu viðbrögð, við börðumst bara hörku vel og vörðumst, vorum agaðir í fyrri hálfleik, mætum inn í seinni hálfleik og byrjum ágætlega en þeir taka bara völdin, sýndu gæði sín og kláruðu okkur."

Leikurinn var jafn í fyrri hálfleik en svo keyra Vesturbæingarnar yfir Vængina og tekur Búi undir það

„Jájá, það var bara vel gert hjá þeim."

Vængir Júpiters geta núna sett fulla einbeitingu á deildina og var Búi spurður út í markmið liðsins í sumar

„Við ætlum okkur að vera í efri hlutanum, núna getum við einbeitt okkur að því, það var búið að vera spenna í okkur fyrir þennan leik og smá titringur sem eðlilegt er."

Viðtalið í heild má sjá í sjónvarpinu hér að ofan

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.