Fotbolti.net
23.06.21 - 08:30
Brynjar Ingi Erluson

Chilwell og Mount líklega ekki með í 16-liða úrslitum

Mason Mount og Ben Chilwell missa líklega af 16-liða úrslitum EM

Mason Mount og Ben Chilwell missa líklega af 16-liða úrslitum EM

Canon

Mynd: EPA

Powerade
Gareth Southgate, þjálfari enska landsliðsins, telur afar litlar líkur á því að Ben Chilwell og Mason Mount verði með liðinu í 16-liða úrslitum Evrópumótsins.
Leikmennirnir voru sendir í sjö daga sóttkví eftir að hafa verið í kringum Billy Gilmour, leikmann Skotlands, eftir að liðin gerðu markalaust jafntefli á dögunum.

Gilmour greyndist með Covid-19 og var sendur í einangrun og þá voru Chilwell og Mount sendir í sóttkví til að koma í veg fyrir hópsmit hjá enska liðinu.

Þeir fóru báðir í skimun við veirunni og voru þeir báðir með neikvætt sýni. England spilar í 16-liða úrslitum Evrópumótsins eftir sex daga en Southgate segir ólíklegt að þeir verði með.

„Þeir ljúka sóttkvíinni á miðnætti fyrir leikdag. Við vitum ekki hvað þeir mega æfa mikið og hvað er hægt að gera. Þeir geta æft einir og svo kemur kannski kafli þar sem þeir geta æft með litlum hópum þar sem er fjarlægð en ég veit ekki hvort þeir geti æft venjulega með okkur," sagði Southgate.

„Raunveruleikinn er því sá að það er mjög flókið fyrir þá að ná næsta leik," sagði hann í lokin.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.