Venni: Gríðarlega yfirvegaður alveg eins og við erum búnir að bíða eftir


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kjartan Kári skoraði í kvöld sitt fyrsta mark í efstu deild

Mynd: Fótbolti.net - J.L.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Mér líður mjög vel auðvitað. Hafði smá áhyggjur af því að fara í þetta frí svona á góðu róli og hvort við mundum missa dampinn en við sýndum það svo sannarlega í dag að við erum enþá á góðu róli." sagði Sigurvin Ólafsson, aðstoðarþjálfari FH eftir sigurinn á Fram í Kaplakrika í kvöld.
„Það gekk upp bara það sem við ætluðum okkur að gera, auðvitað Framarar að spila sinn fyrsta grasleik í sumar og það mátti reikna með því að þeir yrðu svolítið riðgaðir fyrstu mínúturnar þó maður geti aldrei ákveðið að skora snemma eða slíkt þá var auðvitað lagt upp með að pressa svolítið á þá og sem betur gekk það upp."
„Þeir komu okkur pínu lítið á óvart með að byrja með fimm manna vörn og þeir breyttu því um miðjan fyrri hálfleik sem virkaði ágætlega hjá þeim að ná tökum á leiknum aftur og við náðum ekki að telja þetta rétt en við endurskipulögðum okkur í hálfleik og svo var þetta alltaf spurning um að nýta okkar breik og ná í þriðja markið frekar en að fá á sig 2-1 og eitthvað stress."
Kjartan Kári Halldórsson skoraði þriðja mark FH í kvöld af gríðarlegri yfirvegun og á sama tíma skoraði hann sitt fyrsta mark í efstu deild.
„Það var mjög ánægjulegt að sjá Kjartan Kára vippa þessu yfir markmanninn og var gríðarlega yfirvegaður alveg eins og við erum búnir að bíða aðeins eftir og hann auðvitað líka og hann spilaði frábærlega í dag eins og bara vel flestir."
Viðtalið í heild sinni má sjá í sjónvarpinu hér að ofan

Kjartan Kári skoraði í kvöld sitt fyrsta mark í efstu deild

Mynd: Fótbolti.net - J.L.


