Óskar Hrafn um Ronaldo: Gjörsamlega 'pathetic' og þetta grín er að snúast upp í algjöran harmleik

Cristiano Ronaldo hefur átt erfitt mót með Portúgölum

Mynd: EPA

Óskar Hrafn Þorvaldsson, spekingur í EM-stofunni, er kominn algerlega með nóg af þátttöku Cristiano Ronaldo á Evrópumótinu, en hann segir þetta ekki ganga mikið lengur.
Ronaldo hefur verið ósýnilegur gegn Frökkum í leik liðanna í 8-liða úrslitum.
Hann hefur í raun ekki verið að eiga nétt sérstaklega gott mót til þessa og ekki enn skorað.
Óskar og Arnar Gunnlaugsson voru í setti í EM-stofunni, en Óskar sagði þetta skammarlegt að hann sé enn að byrja.
„Nei fyrir mér núna í þessum leik og síðustu leikjum líka lítur þetta út eins og forseti einhvers bananalýðveldis hafi hringt í þjálfarana og sagt: 'Heyrðu, sonur minn, sem getur ekkert í fóbolta verður að byrja sem framherji'. Þetta er bara svona. Þeir eru tíu Portúgalarnir, og hann væflast um völlinn og lyftir höndum. Þetta er gjörsamlega 'pathetic',“ sagði Óskar á RÚV.
„Manstu þegar hann fékk höfuðhöggið áðan? Martínez hefur legið á bæn og hugsað: 'Væriru til í að meiðast?',“ sagði Arnar Gunnlaugsson en þar átti hann við um höfuðhöggið sem Ronaldo fékk eftir samskipti sín við Theo Hernandez.
Óskar er að kalla eftir því að Ronaldo verði tekinn úr liðinu sem allra fyrst.
„Það er eins og það sé myllusteinn um hálsinn á honum. Það er í raun ótrúlegt að Portúgalirnir séu manni færri og búnir að draga sig inn í 8-liða úrslitin en þetta grín getur ekki gengið lengur af því að þetta grín er að snúast upp í algeran harmleik,“ sagði Óskar enn fremur.

Cristiano Ronaldo fékk það óþvegið frá Stofunni. Óskar Hrafn????? pic.twitter.com/VuQX9G2XDT
— RÚV Íþróttir (@ruvithrottir) July 5, 2024