Fotbolti.net
23.06.26 - 02:01
Jóhann Þór Hólmgrímsson

HM: Haaland frábær er Noregur tryggði sér sæti í 32-liða úrslitum

HM: Haaland frábær er Noregur tryggði sér sæti í 32-liða úrslitum
Canon

Mynd: EPA

Noregur 3 - 2 Senegal
1-0 Marcus Pedersen ('43 )
2-0 Erling Haaland ('48 )
2-1 Ismaila Sarr ('53 )
3-1 Erling Haaland ('58 )
3-2 Ismaila Sarr ('90 )
Noregur er komið í 32-liða úrslit á HM eftir sigur á Senegal í nótt.

Marcus Pedersen kom inn á sem varamaður snemma leiks fyrir Julian Ryerson sem meiddist. Pedersen gerði sér lítið fyrir og kom Norðmönnum yfir þegar skammt var til loka fyrri hálfleiks.

Erling Haaland mætti sterkur til leiks í seinni hálfleik en hann bætti öðru markinu við strax í upphafi hálfleiksins eftir góða skyndisókn.

Ismaila Sarr minnkaði muninn þegar hann komst í gegn og skoraði af harðfylgi. Haaland bætti þriðja marki Norðmanna við þegar hann stýrði boltanum í slána og inn eftir sendingu frá Patrick Berg.

Senegalar urðu fyrir áfalli í kjölfarið þegar markvörðurinn Edouard Mendy þurfti að fara af velli vegna meiðsla.

Senegalar og Sarr gáfust ekki upp því Sarr skoraði annað mark þegar þrjár mínútur voru komnar fram yfir venjulegan leiktíma. Þeir höfðu sjö mínútur til að jafna metin

Noregur er komið áfram í 32-liða úrslitin úr I riðli en liðið mætir Frakklandi þann 26. júní í úrslitaleik um toppsætið.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.