Fotbolti.net
23.06.26 - 13:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke

Óskar Hrafn: Í fullkomnum heimi tekur hann við keflinu af Amin

Galdur kom sterkur inn í gær.

Galdur kom sterkur inn í gær.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR, var til viðtals eftir sigurinn á ÍA í gærkvöldi. Hann var spurður út í leikmannamál liðsins en ljóst er að Alexander Rafn Pálmason er að fara til Nordsjælland í Danmörku og Amin Cosic er að öllum líkindum á leið til norsku meistaranna í Viking.

„Ef það gerist (að Amin fer út) þá verðum við auðvitað að skoða það, ef Amin fer þá erum við að missa tvo leikmenn. Auðvitað þurfum við að skoða það, en hvort eitthvað gerist í framhaldinu verður að koma í ljós," sagði Óskar.

Sumaglugginn opnar 16. júlí og verður opinn í fjórar vikur.
Amin Cosic: Vona að fólk njóti þess að horfa á mig spila á meðan það getur
TENGT EFNI

Amin Cosic: Vona að fólk njóti þess að horfa á mig spila á meðan það getur

Lestu um leikinn: KR 5 - 3 ÍA
Galdur Guðmundsson (2006) kom öflugur inn á í gær og átti risastóran þátt í síðustu tveimur mörkum KR. KR fékk hann frá Horsens í sumarglugganum í fyrra.

„Galdur hefur verið mikið meiddur og er að komast til baka í toppform. Hann átti frábæra innkomu í dag. Í hinum fullkomna heimi myndi hann taka við keflinu af Amin, ef Amin fer út," sagði þjálfarinn.

„Ég þurfti að gera lítið í dag, mér fannst Galdur koma geðveikur inn, enn og aftur. Hann á góða sendingu á mig í öðru markinu og síðan á hann góða sendingu á mig þegar ég gef á Eið og hann skorar," sagði fyrirliðinn Aron Sigurðarson eftir leikinn í gær.
Amin Cosic er á leið til Viking í Noregi.

Amin Cosic er á leið til Viking í Noregi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Haukur Gunnarsson

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Víkingur R.14+3940
2KR15+1732
3Fram14+1230
4Breiðablik14+825
5Valur15-519
6Keflavík14-716
7Stjarnan14-315
8ÍBV14-715
9ÍA14-915
10KA14-813
11FH14-1111
12Þór14-268
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.