Fotbolti.net
22.06.26 - 21:42
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Amin Cosic: Vona að fólk njóti þess að horfa á mig spila á meðan það getur

Auglýsing
Amin Cosic: Vona að fólk njóti þess að horfa á mig spila á meðan það getur
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR vann ÍA 5-3 í mögnuðum leik á Meistaravöllum í dag. Fótbolti.net ræddi við Amin Cosic eftir leikinn. Skagamenn byrjuðu leikinn mun betur og náðu forystunni á 12. mínútu.
Lestu um leikinn: KR 5 - 3 ÍA
„Þetta var erfiður leikur eins og flestir leikir í þessari deild. Þetta var örugglega leikur með hátt xG fyrir bæði lið. Mikilvægir þrír punktar til að halda sig í þessari toppbaráttu," sagði Amin.

„Við vorum eiginlega ekki með fyrstu 15-20 mínúturnar. Vorum að leyfa þeim að gera of mikið, vorum að spila þeirra leik, fara í langa bolta og missa seinni boltann. Þurftum að jafna ákefðina þeirra og um leið og við gerðum það sundurspilum við þetta lið."

Amin nýtur þess að spila með KR en hann er að yfirgefa félagið á næstunni en hann er sagður vera á leið til Viking Stavanger í Noregi.

„Það er mjög gaman. Ég er ekki kominn með brjálæðislega mörg mörk en maður býst alltaf við því eða gefa stoðsendingar eða búa til færi. Maður hugsar alltaf það er eitthvað að fara gerast," sagði Amin.

„Það gæti farið að styttast í það. Ég mun njóta þess á meðan ég get og vona að fólk njóti þess á meðan þau geta að vera hér og horfa á mig spila og ég að spila fyrir þessa stuðningsmenn. Eins og margir hafa heyrt er ekki mjög mikið eftir."
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.