Man City ræðir um möguleg kaup á Ait-Nouri - Adarabioyo eftirsóttur - Newcastle vill Sesko
   mán 23. júlí 2018 06:00
Ingólfur Páll Ingólfsson
James McClean til Stoke City (Staðfest)
James McClean er mættur til Stoke.
James McClean er mættur til Stoke.
Mynd: Getty Images
Stoke City er búið að semja við James McClean sem kemur til félagsins frá West Bromwich Albion.

Þessi 29. ára gamli leikmaður skiptir því yfir í annað lið sem féll úr ensku úrvalsdeildinni og spilar í Championship deildinni á næsta tímabili. Kaupverðið er talið vera um 5 milljónir punda en gæti hækkað í 6 milljónir ef að leikmaðurinn stendur sig vel.

McClean eru fjórðu kaup sumarsins og skrifar undir fjögurra ára samning við félagið. Gary Rowett er nýr knattspyrnustjóri Stoke og hafði þetta að segja um leikmanninn.

James er leikmaður sem ég hef haft mikið dálæti á í langan tíma. Hann hefur alvöru gæði með vinstri fæti sínum og er gamaldags vængmaður,” sagði Gary Rowett.
Athugasemdir
banner
banner
banner