Hver tekur við af Klopp? - Dani Olmo orðaður við Man Utd - Greenwood í skiptum fyrir Gleison Bremer
banner
   mán 23. júlí 2018 15:50
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Jökull lánaður til Hungerford (Staðfest)
Mynd: .
Reading er búið að lána markvörðinn efnilega Jökul Andrésson til Hungerford Town. Lánssamningurinn gildir til áramóta.

Hungerford Town spilar í næst efstu utandeildinni á England en einnig er hægt að kalla þá deild F-deild Englands.

Hungerford endaði í 19. sæti deildarinnar á síðasta tímabili en 22 lið eru í henni.

Jökull er 16 ára, að verða 17 ára í sumar. Í fyrra samdi Jökull við Reading en bróðir hans Axel Óskar Andrésson hefur leikið með liðinu síðan árið 2014.

Arsenal vildi fá Jökul í sínar raðir í fyrra þar sem félagið taldi hann einn af þremur bestu ungu markmönnum í Englandi. Hann ákvað hins vegar að hafna samningi frá Arsenal og semja við Reading.

Jökull spilaði nokkra leiki með U23 liði Reading á síðasta tímabili en hann mun spila meistaraflokksbolta allavega til áramóta.
Athugasemdir
banner
banner
banner