Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   lau 23. júlí 2022 22:00
Ívan Guðjón Baldursson
PSG að ganga frá kaupum á Mukiele
Mukiele fagnaði bikarsigri Leipzig dátt í lok maí.
Mukiele fagnaði bikarsigri Leipzig dátt í lok maí.
Mynd: EPA

Paris Saint-Germain er að ganga frá kaupum á hægri bakverðinum Nordi Mukiele frá RB Leipzig.


Mukiele er 24 ára gamall og með aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við Leipzig þar sem hann hefur verið lykilmaður undanfarin fjögur ár og spilað 146 leiki.

Bakvörðurinn hefur þegar komist að samkomulagi við PSG en hann mun berjast við hinn feykiöfluga Achraf Hakimi um byrjunarliðssæti.

Mukiele er franskur með einn A-landsleik að baki og kostar aðeins um 15 milljónir evra.

Hann verður fjórði leikmaðurinn til að ganga í raðir PSG í sumar eftir Nuno Mendes, Vitinha og Hugo Ekitike.


Athugasemdir
banner