banner
   lau 23. júlí 2022 18:18
Ívan Guðjón Baldursson
Times: Atletico að losa Griezmann til að kaupa Ronaldo
Mynd: Getty Images

The Times heldur því fram að Atletico Madrid sé að vinna hörðum höndum að því að selja Antoine Griezmann til að safna pening fyrir Cristiano Ronaldo.


Ronaldo vill spila í Meistaradeildinni og ljóst að hann fær það tækifæri ekki hjá Manchester United. Diego Simeone þjálfari Atletico vill ólmur starfa með Ronaldo sem hefur skorað ófá mörkin gegn lærisveinum hans og þar á meðal eru nokkrar þrennur.

Hinn 37 ára gamli Ronaldo kostar vænan skilding þrátt fyrir aldur á meðan Atletico er enn að borga fyrir Griezmann sem kom til félagsins á tveggja ára lánssamningi með 40 milljón evra kaupskyldu. 

Ronaldo er goðsögn hjá Real Madrid og eru margir sem trúa því ekki að leikmaðurinn myndi nokkurn tímann ganga í raðir Atletico. Fréttamenn Times eru þó ósammála því og segja að Ronaldo hafi mikinn áhuga á að starfa með Simeone.


Athugasemdir
banner
banner