Fotbolti.net
23.08.20 - 17:00
Ingimar Bjarni Sverrisson

Maggi varði víti tvisvar: Kom mér á óvart að þurfa að fara í markið

Auglýsing
Maggi varði víti tvisvar: Kom mér á óvart að þurfa að fara í markið
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

„Fyrri hálfleikurinn okkar var alveg þokkalegur en leikurinn var mjög opin. Svo gerist það að Andri fær rautt og ég þarf að taka búrið á mig,“ sagði Magnús Þórir Matthíasson, leikmaður Kórdrengja, eftir stjörnuleik sinn gegn Víði í dag. Hann skoraði mark í fyrri hálfleik en þurfti að taka á sig að vera markmaður í seinni. Þá varði hann víti tvisvar.
„Það var ekki leiðinlegt. Hann vildi meina að ég væri farin af línunni í fyrra en svo náði ég að verja seinna líka. Það hefði verið slæmt að fá 3-1 markið,“ sagði hann um þetta augnablik.

Kórdrengir eru enn þá á toppi deildarinnar með 26 stig eftir ellefu leiki og fjögurra stiga forskot á Þrótt og Selfoss.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.